Verið velkomin á heimasíðu farandsýningarinnar Ekki snerta jörðina! Leikir 10 ára barna.
Sýningin er afrakstur rannsóknar um leiki 10 ára barna á Íslandi veturinn 2009-2010. Með því að tví-smella á kassana hér til hliðar má fá nánari upplýsingar um rannsóknina og sýninguna. Einnig er skrá yfir leiki, bæði þá sem voru vinsælastir hjá krökkunum sem tóku þátt í rannsókninni og nokkra skemmtilega gamla leiki. Í kassanum „fyrir kennara“ má finna verkefni og fleira sem kennarar geta nýtt við kennslu í tengslum við leiki barna fyrr og nú.
Prófaðu týpuleikinn og sjáðu hvaða leikir henta þér best! Taktu prófið
Fleiri leikir
Fimmtudaginn 11. ágúst var sýningin opnuð í Sjóminjasafninu á Eyrarbakka. Hér má sjá nokkrar myndir frá opnuninni.
Lesa meira
Farandsýningin Ekki snerta jörðina - leikir 10 ára barna hóf för sína um landið í Þjóðminjasafni Íslands. Þar var sýningin opnuð 14. apríl 2011 og vakti mikla lukku gesta á öllum aldri.
Lesa meiraFimmtudaginn 14. apríl 2011 var sýningin Ekki snerta jörðina! Leikir 10 ára barna opnuð í Þjóðminjasafni Íslands. Þetta er fyrsti viðkomustaður sýningarinnar af mörgum, en í lok júlí verður hún tekin niður og send í hringferð um landið. Í framhaldinu verður hún sett upp ýmist í söfnum eða skólum, en hér má fylgjast með ferðum hennar um landið.
Lesa meiraHér má finna skólana sem tóku þátt í verkefninu.
Hvernig leika börn sér í dag? Þessi spurning var hvatinn að rannsókn á leikjum 10 ára barna árið 2009. Söfnin sem stóðu að rannsókninni voru Árbæjarsafn, Byggðasafn Árnesinga á Eyrarbakka, Byggðasafn Reykjanesbæjar, Lækningaminjasafn Íslands í Nesi, Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum, Minjasafnið á Akureyri, Þjóðfræðistofa á Hólmavík og Þjóðminjasafn Íslands.
Lesa meira
Hér má finna verkefni í tengslum við sýninguna sem nýta má við kennslu. Verkefnin er bæði hægt að skoða á síðunni og sækja í .pdf.
Lesa meiraSuðurgötu 41, 101 Reykjavík
Sími: 530-2200
Fax: 530-2201
Netfang: thjodminjasafn@thjodminjasafn.is