Fyrir kennara
Hér má finna verkefni í tengslum við sýninguna sem nýta má við kennslu. Verkefnin er bæði hægt að skoða á síðunni og sækja í .pdf.
1. Hvaða leikir eru vinsælastir í skólanum/bekknum?
Nemendur skrái niður þá leiki sem bekkurinn fer oftast í á ákveðnu tímabili. Ætli þessir leikir séu til í öðrum skólum? Hvaða leikir eru vinsælastir hjá stelpum? En hjá strákum? Hvaða leikjum leika stelpur og strákar sér saman í? Hafa einhverjir af leikjunum verið búnir til af nemendum skólans? Eru notaðir einhverjir hlutir í leiknum?
Hægt væri að flokka leikina niður í :
- Boltaleiki
- Klappleiki
- Spil
- Hlutverkaleiki
- Tölvuleiki
- Annað
2. Dagbók
Nemendur eru látnir halda dagbók í eina viku og skrái niður hjá sér:
- Hvaða leiki þeir fóru í/hvað þeir léku sér með á hverjum degi
- Með hverjum þeir léku sér
- Hvaða leiki léku þeir í skólanum/heima
3. Ljósmyndaverkefni
Nemendum skipt í hópa og þeir fá það verkefni að taka 5-10 ljósmyndir á hvern hóp sem sýnir þau eða samnemendur í leikjum. Einnig mætti taka myndir af leikföngum/hlutum sem leikið er með, annað hvort í skólanum eða á heimili. Myndir síðan prentaðar út, límdar á stór spjöld sem hengd eru upp til sýnis í skóla/kennslustofu.
4. „Tímavélin“
Markmið þessa þema er að kynna nemendur fyrir mikilvægi leiks og leikfanga jafnt í fortíð, nútíð og framtíð.
- Nemendur ímynda sér að þeir geti stokkið 50 ár fram í tímann. Hvað af þeim leikföngum eða leikjum sem notaðir eru í dag verða orðnir „gamaldags“ eða úreltir? Hvernig leikir ætli verði komnir þá? Hver hópur velur sér 3 leikföng/leiki sem er vinsælt í dag sem þeir halda að krakkar muni ekki leika sér að eftir 50 ár. Þessum leikföngum/leikjum er safnað saman og nemendur búa til litla sýningu í skólanum þar sem yfirskriftin gæti verið: Leikir barna fyrir 50 árum.
- Nemendur fara aftur í tímann: hvernig léku foreldar þeirra sér? En afi og amma? Nemendur velji sér eldri einstakling úr fjölskyldunni (t.d. ömmu) og spyrji spurninga á borð við: Hvað lékstu þér með þegar þú varst lítil? Hverjir voru vinsælustu leikirnir? Áttir þú mikið dót? Hvað var uppáhalds dótið/leikurinn þinn? Með hverjum lékstu þér? Nemendur taki ljósmyndir af gömlum leikföngum, skrifi litlar ritgerðir, eða teikni myndir sem sett verði upp í litla sýningu í skólanum sem gæti borið titilinn: Leikir barna fyrir ... árum.
5. Leikjaþema í skólanum
Hægt væri að nota t.d. opna daga í skólanum til að hafa leikjaþema. Þar myndu nemendur kynnast öðrum leikjum en þeir eru vanir, ýmist gömlum eða nýjum. Hægt væri að miða við að kynna nemendum 1-2 nýja leikji á dag sem hópurinn fer í saman, til dæmis einn gamlan leik og einn nýjan.
6. Safnkassi skólans
Verkefnið væri gert með hliðsjón af rannsóknarverkefninu um leiki barna. Þar myndu nemendur ræða með kennara sínum hvaða leiki, ljósmyndir og leikföng þau myndu velja ef þau gerðu einn kassa fyrir sinn skóla. Væri það verkefni sem nemendur úr mismunandi bekkjarstigum gætu gert saman (t.d. væri heimildum, ljósmyndum og leikföngum tengdum leikjum barna í 5. bekk safnað, en eldri nemendur myndu hjálpa til við að útfæra hugmyndina og búa til kassann).
7. Erlend áhrif í leikjum/erlendir leikir
Áhugavert væri að skoða hvort erlend áhrif séu í leikjum nemenda, til dæmis ef barn er í bekknum af erlendum uppruna eða jafnvel kennarinn sjálfur. Skemmtilegt væri að sjá hvernig þau áhrif, ef svo á við, tengjast inn í barnamenningu og leiki.
Verkefni - Ekki snerta jörðina! Leikir 10 ára barna.
