1.000 auð spjöld
Ýmis borðspil voru vinsæl í skólunum, t.d. lúdó, tafl og kotra. Hér fylgja reglurnar að einskonar borðspili, sem hægt er að spila nánast hvar sem er og hvenær sem er og er jafn skemmtilegt fyrir fullorðna og börn.
1.000 auð spjöld
Fyrir þetta spil þarf bunka af blöðum (það er t.d. gott að rífa/klippa A4 blöð í fjóra jafnstóra hluta) og einn blýant eða penna á mann. Áður en leikurinn hefst af alvöru fær hver þátttakandi nokkur blöð og skriffæri. Næst búa allir til nokkur spjöld til að nota í spilinu. Efst þarf að skrifa nafnið á spjaldinu, fyrir neðan að teikna mynd og að lokum þarf að ákveða hvað spjalið geri, hvort það gefi stig og þá hversu mörg.
Dæmi um spjöld:
Sól, sól skín á mig!
Búðu til veðurspá fyrir næstu daga og tilkynntu hana yfir hópinn - standandi á einum fæti! Þú færð 10 stig.
Ertu galdra-klár?
Teldu upp allar persónur sem þú mannst eftir í Harry Potter-bókunum á tveimur mínutum. Þú færð 0.5 stig fyrir hvert nafn sem þú manst.
Þegar búið er að búa til spjöldin er þeim öllum safnað saman, þau stokkuð og þeim dreift á alla þátttakendur. Nú skiptast menn á að spila einu spili í einu á einhvern hinna þátttakendanna og safna stigum.
Að leik loknum má kjósa um, hvort geyma eigi einhver sniðug spjöld og nota aftur seinna.
