Brennó
Brennibolti/Brennó
Þátttakendum er skipt í 2 lið. Liðin byrja á því að velja sér höfðingja sem eru staðsettir á sitthvorum enda vallarins. Miðlína skilur á milli liðana. (Gott að nota t.d körfuboltavöllinn). Boltinn gengur síðan á milli höfðingjans og samherja og þeir reyna að skjóta andstæðinga sína. Takmarkið er að skjóta alla úr hinu liðinu. Þeir sem fá boltann í sig fara yfir til höfðingjans og hjálpa honum. Þegar aðeins er einn eftir fer höfðinginn út og hann fær alltaf boltann. Það má grípa boltann þegar verið er að skjóta í þau, ef þau missa boltann eru þau úr og fara til höfðingjans. Það lið sem er á undan að skjóta alla andstæðinga sína sigrar.
