Ekki snerta jörðina - Leikir 10 ára barna

Ekki snerta grasið/jörðina

Ekki snerta grasið/jörðina

Þennan leik er best að leika á afmörkuðu leiksvæði, t.d. í klifurkastala. Einn "er hann" og reynir að ná hinum. Hinir hoppa á milli steina og klifra í leiktækjum, en mega ekki snerta jörðina nema á afmörkuðu svæði (t.d. með húllahring). Ef sá sem "er hann" nær einhverjum er sá úr leik. Ef einhver snertir jörðina, annar en sá sem "er hann" er hann einnig úr leik. Sá sem er síðastur að verða úr "er hann" næst.

Mörg tilbrigði eru til við þennan leik, t.d. hjálpa þeir sem verða úr stundum við að ná hinum eða það er leyfilegt að taka 3-5 skref á jörðinni.


Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica