Ekki snerta jörðina - Leikir 10 ára barna

Klappleikir

Klappleikir

Klappleikir af ýmsu tagi voru vinsælir í flestum skólanna, sérstaklega hjá stelpunum. Hér fylgja nokkur dæmi um vísur sem sungnar eru með klappleikjunum:

Einn sjómaður (heimatilbúin útgáfa frá Austurbæjarskóla)

Einn sjómaður fór til austur, austur, austur,
til að læra málið austur, austur, austur.
En þegar hann kom til austur, austur, austur,
þá var það bara austur, austur, austur.

Einn sjómaður fór til bæjar, bæjar, bæjar,
til að læra málið bæjar, bæjar, bæjar.
En þegar hann kom til bæjar, bæjar, bæjar,
þá var það bara bæjar, bæjar, bæjar.

Einn sjómaður fór til skóli,skóli,skóli,
til að læra málið skóli, skóli, skóli.
En þegar hann kom til skóli, skóli, skóli,
þá var það bara skóli, skóli, skóli.

Einn sjómaður fór til austur,austur,austur,
til að læra málið bæjar, bæjar, bæjar.
En þegar hann kom til skóli, skóli, skóli,
þá var það bara AUSTURBÆJARSKÓLI!

 

Ripp rapp rúrí

Ripp rapp rúrí
ripp rapp say húlla húlla
sjú sjú baby
sjú sjú a Mexico.
Immí immí úa
immí immí hauskúpa
fuglinn kann að fljúga
einn – tveir – þrír (um leið og fætur eru færðir sundur)

svo er byrjað aftur, farið hraðar með vísuna og í lokin eru fætur færðir lengra í sundur. Svona gengur leikurinn koll af kolli þar til annar dettur og tapar þar með leiknum.


Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica