Krókódíll, krókódíll
Krókódíll, krókódíll er hópleikur þar sem einn „er hann" og á að ná hinum krökkunum. Sá sem „er hann" stendur í fjarlægð frá hópnum og snýr í hann baki því hann má helst ekki sjá hvernig föt krakkanna eru á litinn. Krakkarnir hrópa öll saman: Krókódíll, krókódíll, hvernig kemst ég yfir Gullbrúnna? Þá segir sá sem er hann til dæmis: Allir sem eru í gulu mega fara yfir Gullbrúnna.
Þeir sem eru í einhverju gulu ganga þá óhultir yfir en hinir þurfa að hlaupa og sá sem „er hann" reynir að ná þeim. Þeir sem nást bætast í hóp með þeim sem eltir. Þannig heldur leikurinn áfram þar til enginn er eftir. Krakkarnir þurfa oft að sanna fyrir þeim sem eltir að þau séu virkilega í þeim lit sem var nefndur og það er greinlega hluti af fjörinu.
