Ekki snerta jörðina - Leikir 10 ára barna

Kvíslaleikur

Kvíslaleikur

Byggt á frásögn nemenda í  í 5. EH í Ártúnsskóla  5. desember 2009. Nokkrir strákar í Ártúnsskólanum fundu uppá þessum leik.

Nafnið er dregið af því að hann er bara leikinn í götum í Ártúnshverfinu sem bera nöfn sem enda á –kvísl; Breiðukvísl, Fiskikvísl, Sílakvísl, Álakvísl,  Birtingakvísl og Beikjukvísl, en auðvelt er að heimfæra leikinn upp á aðra staði.

Leikurinn líkist löggu- og bófaleik. Skipt er í tvö lið, löggur og bófa og svo er talið upp í sextíu.  Bófarnir hlaupa undan eða fela sig en löggurnar reyna að ná þeim, snerta þá og segja „klukk“.  Þeir sem hafa náðst eru fangar en frjálsu bófarnir geta frelsað þá aftur með því að laumast að þeim og snerta þá. Við það eru stundum notaðir farsímar, en fangarnir og frelsararnir hringjast á eða senda SMS til þess að láta vita hvar þeir eru. Þegar allir hafa náðst er leiknum lokið, en þá hefst gjarnan annar. Þá er skiptst á þannig að þeir sem áður voru löggur verða bófar og öfugt.


Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica