Kýló
Þátttakendum er skipt í 2 lið, inni og útilið. Leikurinn takmarkast af tíma. Inniliðið er t.d 5 mínútur inni og kýlir, og skiptir síðan um hlutverk og verður útiliðið og eltir boltann. Inniliðið er allt fyrir innan endalínu en útiliðið dreifir sér um völlinn og er tilbúið að sækja boltann. Einn úr útiliðinu er valinn pottstjóri, einhver sem er flinkur að grípa, hann stendur fyrir framan röðina hjá inniliðinu. Það er ágætt að hafa 4 potta sem dreifast jafnt á völlinn, þátttakendurnir eiga síðan að hlaupa í pottana eftir að þau hafa kýlt boltann.
Markmiðið hjá inniliðinu er að geta hlaupið á milli pottana og komist heilan hring án þess að verða úr. Ef þau ná að komast heilan hring fá þau eitt stig. Þátttakendurnir í útiliðinu reyna að vera eins fljótir að ná boltanum og koma honum til pottstjóra sem verður að slá honum niður í pottinn sem er fyrir framan hann. Þeir sem eru að hlaupa á milli potta þegar pottstjóri slær knettinum niður eru „dauðir” og verða að fara aftur fyrir röðina og byrja upp á nýtt og fá því ekkert stig. Ef gripið er hjá þeim sem kýlir þá er hinn sami „dauður” og verður að fara aftur fyrir röðina, börnin sem eru að hlaupa milli potta eru ekki „dauð” þótt boltinn sé gripinn, þau halda áfram að koma sér í pott áður en pottstjóri slær knettinum niður. Ef einhver kemst heilan hring á einu höggi færi hann 2 stig.
