Ekki snerta jörðina - Leikir 10 ára barna

Pókó

Pókó

10 ára stelpa í Austurbæjarskóla útskýrði að pókó sé leikur þar sem um er að ræða völl með fjórum reitum í. Það eru fjórir inn á og einn er kóngurinn, ein drottning, keisari og gosi og svo eru einhverjir út af. Ef maður er með bolta á að reyna að halda honum á lofti án þess að  hann fari út af eða kasta á einn reit og hinn á að gera við einhvern annan og ef hann fer út af án þess að hann snerti reitinn hjá hinum þá er hann úr leik. En ef hann snertir reitinn og hinn nær ekki að ná boltanum þá er hinn aðilinn úr.

Strákur, 10 ára bætir við: „Það er eiginlega þannig að maður hendir honum í jörðina og fer yfir á næsta reit og hinn á að reyna að berja á hinn reitinn og þeir eiga að reyna að berja þangað til einn nær ekki að berja hann, ef hann fer tvisvar í jörðina eða ef hann snertir boltann án þess að hann snerti reitinn. Og maður má til dæmis ekki gera tvisvar með höndum og [...] það má ekki gera svona og taka boltann og henda honum upp í loftið. [...] Ef hann fer ekki á reitinn manns og ef hann fer útaf þá dettur maður úr og þá kemur næsti inn á sem var út af.“ Annar strákur bætti við:  „Já til dæmis ef ég væri drottning og myndi drepa kónginn þá myndi kóngurinn fara aftast í röðina og ég væri kóngur.“


Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica