Ekki snerta jörðina - Leikir 10 ára barna

Pottleikur

Pottleikur

Tveir eða fleiri eru tröll, og fer tala þeirra eftir því hve margir eru í leiknum. Aðrir þátttakendur eru menn. Tröllin hafa afmarkaðan reit, pottinn, og eiga þau að reyna að ná öllum mönnunum og koma þeim í pottinn. Mennirnir geta veitt mótspyrnu, en mega ekki hjálpa öðrum, en tröllin mega hjálpast að við að ná mönnunum. Þegar búið er að koma manni í pottinn, má hann ekki fara þaðan, nema frjáls maður komi og snerti hann og segi „frels“. Eitt eða fleiri tröll gæta pottsins og reyna að koma í veg fyrir að menn frelsi aðra. Ef tröll nær að klukka þann, sem frelsaður er, áður en hann kemst frá pottinum, verður hann að vera kyrr.


Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica