Skotbolti
Skotbolti
Bolta er kastað upp í loftið. Sá sem nær boltanum reynir að hitta einhvern í hópnum. Þeir sem eru skotnir eiga að yfirgefa leiksvæðið og fá ekki að taka þátt í leiknum aftur fyrr en sá sem skaut viðkomandi verður skotinn sjálfur. Ekki er leyfilegt að skjóta í höfuð á andstæðingi. Ef knöttur er gripinn, er sá úr leik sem skaut knettinum.
