Yfir
Fyrir þennan leik þarf bolta og lítið hús, t.d. verkfæraskúr. Þátttakendum er skipt í tvö lið. Liðin stilla sér upp sitt hvoru megin við húsið. Boltanum er síðan hent yfir húsið á milli liða og er kallað "yfir" í hvert sinn sem boltanum er kastað. Ef einhverjum tekst að grípa boltann þegar hann kemur fljúgandi yfir húsið kallar sá hinn sami "gripið". Þá eiga allir að hlaupa kringum húsið, en sá sem greip boltann reynir að henda honum í sem flesta úr hinu liðinu áður en þeir ná að hlaupa allan hringinn. Þeir sem fá boltann í sig fara yfir í hans lið. Liðin stilla sér síðan upp aftur og hefja aðra umferð. Leiknum lýkur þegar allir þátttakendur eru í sama liði.
