Ekki snerta jörðina - Leikir 10 ára barna

Þjóðminjasafnið Árbæjarsafn Minjasafn Austurlands Þjóðfræðistofa Minjasafnið á Akureyri Byggðasafn Árnesinga Lækningaminjasafn Íslands í Nesi Byggðasafn Reykjanesbæjar Kennimerki
Rannsóknin
teikn_dagbok_4_fotbolti

Hvernig leika börn sér í dag?

Hvernig leika börn sér í dag? Þessi spurning var hvatinn að rannsókn á leikjum 10 ára barna árið 2009. Söfnin sem stóðu að rannsókninni voru Árbæjarsafn, Byggðasafn Árnesinga á Eyrarbakka, Byggðasafn Reykjanesbæjar, Lækningaminjasafn Íslands í Nesi, Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum, Minjasafnið á Akureyri, Þjóðfræðistofa á Hólmavík og Þjóðminjasafn Íslands.

Starfsmenn safnanna heimsóttu skóla og tóku viðtöl við nemendur í  5. bekk um leiki og leikföng. Sum barnanna héldu dagbók um leiki sína í eina viku og afhentu söfnunum til varðveislu. Einnig voru teknar ljósmyndir og stutt myndskeið af börnum í ýmsum leikjum.

Niðurstöðurnar úr þessum rannsóknum má sjá í rannsóknarskýrslu sem kemur út árið 2012 og verður þá birt hér á síðunni.

Spurningablöð sem notuð voru við rannsóknina

Skólarnir sem tóku þátt í verkefninu voru:

Austurbæjarskóli

Ártúnsskóli

Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri

Egilsstaðaskóli

Flóaskóli

Grunnskóli Barnaspítala Hringsins

Grunnskólinn á Hólmavík

Holtaskóli

Lundarskóli


Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica