Ártúnsskóli
Ártúnsskóli í Ártúnshverfi er fámennasti grunnskóli Reykjavíkur. Við upphaf skólaárs 2009-2010 voru skráðir 154 nemendur í skólann á aldrinum 6-12 ára í sjö bekkjardeildum og því einn bekkur í árgangi. Flestir þessara bekkja eru fjölmennir eða allt að 30 nemendur í bekk. Unnið er með alla árganga í anda samvinnu og samstarfs eins og um einn námshóp væri að ræða.
18. nóvember 2009 var 5. EH heimsóttur. Spurningarlisti var lagður fyrir nemendur og dagbókum dreift. Heimsóknin gekk vel og voru börnin fús til samstarfs. 2. desember var bekkurinn aftur heimsóttur. Veður var kalt þennan dag og snjór á jörðu. Fyrst var tekið viðtal við þá 9 stráka sem mættir voru og svo við 8 stelpur og útskýrðu þau suma þá leiki sem nefndir voru á spurningalistunum. Viðtölin voru hljóðrituð og farið var með börnunum út í tvennar tuttugu mínútna frímínútur og myndir og myndbönd tekin af þeim við leik.
Krakkarnir í Ártúnsskóla fara meðal annars í skemmtilegan leik sem þau kalla "Kvíslaleik", en leikurinn dregur nafn sitt af því að hann er leikinn í götum í Ártúnshverfinu sem bera nöfn sem enda á "-kvísl".
