Austurbæjarskóli
Austurbæjarskóli tók til starfa haustið 1930. Nemandafjöldi varð mestur um og eftir árið 1950 þegar um 1839 nemendur voru við skólann. Í dag stunda 479 nemendur á aldrinum 6-15 ára nám við skólann og starfa 79 manns við skólann. Austurbæjarskóli er fjölmenningarlegur skóli og eru um 20% nemenda af erlendum uppruna.
Að vetrarmorgni þann 9. nóvember 2009 lá leiðin í þennan gamla, stóra skóla til að taka viðtöl við nemendur 5. SI sem voru að undirbúa sig fyrir fyrstu kennslustund dagsins. Í kennslustofunni var hátt á þriðja tug barna sem störðu stóreygð og forvitin á svip á spyrilinn. Nútímabörn í gömlum skóla. Kennarinn las þau upp, eitt af öðru svöruðu þau. Spyrill kynnti verkefnið fyrir þeim, benti á mikilvægi þess að eftir kannski 50 ár þá verði gaman fyrir þau sem þá eru börn að vita hvernig tíu ára krakkar í Reykjavík léku sér árið 2009. Öll voru þau spennt fyrir verkefninu, átta voru valin af handahófi, fjórir strákar og fjórar stelpur, til að svara spurningum og útskýra leiki. Hópurinn fór fram á tóma gangana, spennandi að fá að vera á ganginum þegar á að vera tími.
Krakkarnir svöruðu vel, lifðu sig inn í leikina, jafnvel svo vel að kennarinn þurfti að koma fram á gang til að biðja hópinn að hafa lægra. Hlátrasköll og raddir þeirra bergmáluðu í loftinu, kölluðust á við bergmál liðinna tíma. Augljóst var á svörum barnanna að klappleikir eru með vinsælustu leikjum stelpnanna, en strákarnir fussuðu og sveiuðu við þeim og fannst nóg komið þegar stelpurnar sýndu sjöunda klappleikinn sem kallaði fram mikil hlátrarsköll. Fótbolti átti hug drengjanna, hins vegar virtust bæði kynin dugleg að leika sér saman í hópleikjum á skólalóðinni.
