Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri er með tvær starfsstöðvar, eina í hvoru þorpi. Á Stokkseyri er skólahald fyrir 1.- 5. bekk, þegar rannsóknin er unnin, og fyrir 6. – 10. bekk á Eyrarbakka. Rúta keyrir börnin á milli þorpa. Földi nemenda er þá um 80 á Stokkseyri en 70 á Eyrarbakka. Byggingin á Stokkseyri er staðsett á sléttu túni á rúmgóðu svæði ekki langt frá sjávarsíðunni. Mýrarsvæði og tjörn(Langadæl) er vestan megin við skólann. Þétt upp við bygginguna að austanverðu er Sundlaug Stokkeyrar en þar til hliðar tekur leiksvæðið við. Þegar rannsóknin er unnin haustið og veturinn 2009-2010 er verið að byggja nýja skólabyggingu sunnan við þá gömlu.
Leiksvæðið er samfellt svæði austan og norðan við skólabygginguna. Fyrst kemur sparkvöllur. Þar til hliðar er róluvöllur með rólum, vegasalti og sandkassa. Lítill manngerður hóll skilur á milli sparkvallar og róluvallar. Norðar tekur við stór grasblettur þar sem eru nokkur mörk. Framkvæmd við nýbyggingu þrengdi mikið að leiksvæði barnanna, róluvöllur var færður yfir á núverandi stað, girðingar um byggingarsvæðið lokuðu leið barnanna og til dæmis var ekki lengur hægt að hlaupa hringinn í kringum skólann. Börnin í rannsókninni nefndu sérstaklega að það væri ekki lengur hægt að fara í leikinn Yfir.
Börnin leika sér helst á sparkvellinum í fótbolta, á grasvellinum í hópleikjum eða á róluvellinum í tækjunum eða til að hangsa. Hóllinn er vinsæll staður fyrir hlaup og ærslagang og þegar snjóar er hann mikið notaður. Einn leikjanna sem krakkarnir leika sér í er Krókódíll. Langadæl er bannsvæði skólans og þangað mega nemendur ekki fara. Staðurinn er samt mjög freistandi og þau stelast þangað. Stundum er farið með krakkana á svæðið undir eftirliti að vaða eða á skauta þegar frýs.
