Ekki snerta jörðina - Leikir 10 ára barna

Egilsstaðaskóli
Kastalaklukk-1

Egilsstaðaskóli

Egilsstaðaskóli sem áður hét Grunnskólinn Egilsstöðum og Eiðum varð til við sameiningu Barnaskólans á Eiðum og Egilsstaðaskóla árið 1999. Haustið 2009 var tekinn í notkun hluti viðbyggingar við Egilsstaðaskóla og því skólinn aðeins með eina starfsstöð á Egilsstöðum. Starfsmenn skólans eru rúmlega 60 og nemendur í dag 337, langflestir búsettir í þéttbýli. Stefna hans er að mennta börn og ungmenni og eru eftirfarandi grunngildi kjölfesta skólastarfsins: jákvæðni, gleði, fjölbreytni, virðing, ábyrgð, metnaður og samvinna.

Krakkarnir í Egilsstaðaskóla leika sér oft í „Kastalaklukk" í frímínútum. Á skólalóðinni eru tvö leiktæki sem þau nota til þess, kastali og klifurkastali og eru þau þar mjög mikið. Þau leika sér í kastalanum Kastalaklukk-3eða eins og tvö tóku til orða: „Já, það er svona leikur, alveg eins og maður, er bara svona í kastalanum að reyna að ná öðrum“. Til frekari útskýringar bætti hitt við: „Hann er eiginlega bara alveg eins og eltingarleikur.“ Fyrst velja þau hver byrjar að „ver‘ann“ og er það gert með því að keppast annað hvort um að snerta kastalann eða fara uppí efsta turninn. Sá eða sú sem er síðastur að því „er‘ann“ og reynir að ná hinum sem mega ekki stíga nema ákveðið mörg skref á jörðu og þurfa að halda sér innan viss svæðis. Ef einhver nær þér, þá verður „þú‘ann“ næst. Eins margir geta verið í leiknum og vilja nema kastalinn sé alveg fullur. Ef einhverjir „eru búnir að vera leiðinlegir í síðasta leik, þá fá þeir ekki að vera með.“ Þegar þau voru spurð hversu lengi leikurinn stæði þá var svarað: „ef það væru til dæmis engar frímínútur, þá gæti það verið endalaust.“


Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica