Flóaskóli
Í hlíðinni fyrir fram skólann er lítill róluvöllur með nokkrum rólum og vegasalti. Við brekkurætur, og þá fyrir framan róluvöllinn, er sparkvöllur. Austan við skólahúsið er mikil grasflöt þar sem eru markaðar brautir fyrir langstökk og fleira. Þaðan er stutt út í móa. Leiksvæði barnanna hefur alltaf umlukið skólann þar til nýverið að ný bygging reis norðan megin við skólann. Leiksvæðið hefur því skorist í sundur.
Börnin leika sér allra helst á sparkvellinum, á róluvellinum eða á grasflötinni fyrir aftan skólann. Hér um bil allir nemendur skólans eru í fótbolta samtímis. Áður en leikurinn hefst og jafnvel á meðan á honum stendur hanga nemendur á vellinum, hópa sig saman, spjalla, fíflast, handfjatla farsímana og annað. Mikil blöndun er á milli aldurhópa í leik og samveru.
Krakkarnir í Flóanum spila oft Hrútaspilið sem er borðspil. Því til viðbótar lesa þau og pæla mikið í hrútaskránni og vita jafnmikið um hrúta og aðrir vita um fótboltamenn.
