Ekki snerta jörðina - Leikir 10 ára barna

Grunnskóli Barnaspítala Hringsins

Grunnskóli Barnaspítala Hringsins

Fjöldi og aldur nemenda Grunnskóla Barnaspítala Hringsins er breytilegur enda gera veikindi og slys  sjaldnast boð á undan sér.  Kennslan er því einstaklingsmiðuð og fer ýmist fram í kennslustofu eða sjúkrastofu, stutta stund í senn. 
Engar frímínútur eru hjá Grunnskólanum. Þó er leikur mikilvægur hluti námsins og styttir barninu um leið stundir og auðveldar því að vinna úr aðstæðum sínum og ná aftur heilsu. Því er náið samstarf milli Grunnskólans og Leikstofu Barnaspítalans þar sem mikið er föndrað, spilað, pússlað og kubbað. Oft leika börnin sér ein eða við fullorðna sem hjá þeim eru.
 
Flestir nemendur eru í Barnaskóla Hringsins í örfáa daga eða vikur. Eins og hjá öðrum börnum eru uppáhalds leikirnir þeirra ýmsir boltaleikir og hópleikir. Þegar skyggnst er í dagbækur barnanna kemur í ljós að þau eru að „föndra heilan helling“, spila, kubba, horfa á sjónvarp og spila tölvuspil.

Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica