Ekki snerta jörðina - Leikir 10 ára barna

Grunnskólinn á Hólmavík

Grunnskólinn á Hólmavík

Grunnskólinn á Hólmavík er lítill, einsetinn skóli með um 80 nemendur og skólaakstur er daglega frá nærliggjandi sveitum.  Í 5. bekk, þar sem rannsóknin fór fram, eru  sjö 10 ára nemendur en einnig er nokkuð um samkennslu með bæði yngri og eldri nemendum.  Aðstaða í skólum er alveg prýðileg.  Þar er gott mötuneyti og útileiksvæðið er fremur stórt.  Náttúran í kring er fögur og börnin hafa útsýni út á Steingrímsfjörðinn af skólalóðinni. 

Bakvið skólann eru grænmetisgarðar, töluverður trjágróður, lækur með brú yfir og göngustígar.  Á skólalóðinni sjálfri er nýlegur fótboltavöllur, sem er mikið notaður og nokkur leiktæki, t.d. gamall bátur sem einnig er töluvert nýttur. Húsnæði Grunnskólans er einnig nýtt undir tónskólann, bókasafnið og frístundaheimilið, en sund, dans og leikfimikennsla fer fram í íþróttahúsinu og þurfa börnin að ganga í um 15 mín. þangað. Metþátttaka nemenda er í tónskólanum eða um 90% og er íþróttaiðkun meðal nemenda einnig mjög góð.

Börnin voru áhugasöm um rannsóknina og var svörun þeirra góð.  Farið var í tvær heimsóknir í skólann um miðjan nóvember eftir að samband var haft við kennara og leyfi fengið frá foreldrum til að koma.  Fyrst var verkefnið kynnt og nemendur látnir hafa spurningalistana.  Síðan fengu þau að taka dagbækurnar með sér heim. Viku síðar var þeim safnaði saman. Þá var einnig tekið við þau video-viðtal í skólastofunni og leikir í skólanum teknir upp.


Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica