Ekki snerta jörðina - Leikir 10 ára barna

Holtaskóli
Holtaskoli-Nov.2009-071

Holtaskóli

Holtaskóli í Keflavík er beint fyrir ofan Sundmiðstöðina. Upphaflega hét hann Gagnfræðaskólinn í Keflavík, en  nú er hann einn af fimm grunnskólum Reykjanesbæjar. Krakkarnir sem við heimsóttum voru í 5.ES. Hann var annar af tveimur fimmtubekkjum Holtaskóla. Við hittum krakkana í skólastofunni þeirra í lok nóvember 2009 og fylgdumst með þeim í frímínútum. Einnig tókum við viðtöl við fjóra krakka úr bekknum. Í desember buðum við þeim í heimsókn í safnið í Duushúsum þar sem við sögðum þeim frá því sem hafði komið út úr rannsókninni okkar. Alveg er ljóst að vinsælasti leikurinn var fótbolti. En aðrir boltaleikir voru líka hátt skrifaðir til dæmis leikur sem kallast „að verpa eggjum“ sem reyndar margir kannast við.
Miðvikudaginn 25. nóvember 2009 var fariðí heimsókn í frímínúturnar. Þetta var kaldur og dimmur vetrarmorgunn en krakkarnir létu það ekki á sig fá og léku sér af hjartans list. Við höfðum ljósmyndara með okkur og reyndum að átta okkur á hvað væri svona helst í gangi og töluðum einnig við krakkana.
 
Holtaskoli-Nov.2009-046Stelpur voru að verpa eggjum með alls konar útfærslum þ.e. karfa, foss, froskur, fjall, skalla, kasta og grípa og síðan gerðu þær einhver tákn með höndum sem áttu að sýna hve margir voru úr. Strákarnir voru að leika sér í klifurkastala en þar virtust engar reglur gilda, bara leika sér af list. En þau sögðu að þau léku sér í fleiri boltaleikum í frímínútunum, s.s. brennó, skotbolta, stoð og auðvitað fótbolta. Í Holtaskóla er passað upp á að allir hafi aðgang að vinsælustu leiktækjunum; þannig „átti“ 5.ES fótboltavöllinn tvisvar í viku.
 
Krakkarnir fóru líka í aðra hópleiki. Stundum fóru þau í yfir og notuðust þá við kálf sem er á skólalóðinni. Eltingarleikur í klifurkastalanum var líka vinsæll og stundum fóru þau í snú-snú eða vöggu. Þeim fannst líka gaman að leika sér í holtinu fyrir aftan skólann. Leikinn mætti kalla „bannað að snerta gras“ en hann felst í því að hoppa á milli steina til að forðast grasið. Ef einhver stígur á gras þá verður hann að eltast við hina og reyna að klukka. Mörgum fannst líka gaman að fara í róluleiki, en lýstu þeim leikjum ekki nánar. Einnig fannst sumum gaman að vega salt og fara í þyngdarleik sem er einhver dularfullur leikur sem engar upplýsingar fengust um.
 

Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica