Lundarskóli
Lundarskóli í Lundar- og Gerðahverfi er stærsti skólinn á Akureyri með 490 nemendur skólaárið 2009-2010. Í 5. bekk voru 59 nemendur þar af voru 19 í 5.H, 9 stelpur og 10 strákar. Þegar komið var í heimsókn í 5.H. var frjáls tími. Krakkarnir voru nýbúnir að klára verkefni og höfðu unnið sér inn frjálsan tíma. Margir voru að spila, enda eru spil og borðspil notuð markvisst í skólastarfinu bæði í kennslu og sem umbun.
Nokkrir strákar voru að leika sér með puttabretti. Það er leikfang sem er smækkuð mynd af hjólabrettum sem leikið er með á sama hátt og venjulegt hjólabretti, nema að puttarnir eru látnir stjórna en ekki fæturnir. Þegar komið var út í frímínútur héldu strákarnir áfram að leika sér með brettin sín á tröppum við útganginn.
Í frímínútum var rokið af stað rakleiðis á gervigrasfótboltavöllinn. Þar hópuðust krakkarnir, stelpur og strákar úr bekknum og árgangnum, í allsherjar fótbolta. Líklega hafa verið um 20 krakkar á vellinum og fjórir að horfa á. Mikil stemning var á vellinum, hrópað, kallað og hlegið. Jafnvel þótt boltinn færi í andlitið voru tárin þurrkuð og haldið áfram. Aðspurð sögðu krakkarnir að þau væru fótboltaóð.
Krakkarnir voru í fyrstu feimin að tjá sig um hvaða leiki þau færu í eða að þau færu yfir höfuð í einhverja leiki. Það var augljóst bæði af fatnaði og tali krakkanna að fótbolti átti alla þeirra athygli. Þegar til kastanna kom var þó einnig þó nokkuð um skotleiki og annars konar leiki með bolta eins og að verpa eggjum.
Skiptar skoðanir voru um það meðal krakkanna hvort túttubyssur væru leikfang sem þau léku sér með. Strákarnir játuðu ófeimnir að handleika slík tæki en stelpurnar sögðu jafn ákveðið nei! Þetta var eina skiptið sem kom fram svo ákveðinn munur á kynjunum.
