Valmynd.
Þú ert þrautatýpa! Þú hefur mest gaman af allskonar þrautum og gátum. Þér finnst líka gaman að leggja þrautir fyrir aðra. Hefur þú prófað að hoppa yfir sauðalegg?
Þú ert boltatýpa! Þú hefur mest gaman af allskonar boltaleikjum. Það á vel við þig að sparka bolta, henda bolta og grípa bolta. Þér finnst sérstaklega gaman að spila fótbolta. Stundum ertu líka í handbolta og körfubolta. Þér finnst verst þegar þú færð engan í boltaleik með þér. Hefur þú prófað að varpa eggjum?
Þú ert Sögutýpa! Þér finnst gaman að syngja og dansa. Þú elskar að horfa á söngvamyndir og þætti. Þér finnst skemmtilegt að búa til og segja sögur og brandara. Skemmtilegast finnst þér að klæða þig í allskonar búninga og búa til leikrit eða fara í hlutverkaleik. Hefur þú prófað pottleik?
Þú ert tækjatýpan! Þú vilt helst spila tölvuleiki eða leika þér í símanum. Þér finnst gaman að senda sms. Hefur þú prófað kvíslaleikinn?