Um sýninguna

Grunnhugmynd sýningar og sýningarrýmis byggir á endurfundum við samevrópska menningu á Íslandi, með klaustrið sem einhvers konar miðstöð kristinnar íhugunar og menningarstarfa í brennipunkti.
Rýmismynduninni er ætlað að minna á klausturgarð og krossgang í klaustrum þar sem brunnur er í miðju ferningslaga garðrýmis sem umlukið er bogagöngum. Garðurinn og krossgangurinn eru rými íhugunar en einnig grafreitur og þaðan er séð og gengið til annarra staða utan klaustursins.
Í „klausturgarðinum” er sagt frá Kirkjubæjarklaustri og Skriðuklaustri en réttsælis umhverfis hann fyrst Íslandskort með Þingstöðum og umfjöllun um þá, síðan Reykholt, þá Hólar, Gásir, Skálholt fyrir miðjum sal, Keldudalur og að lokum umfjöllun um Kuml og staðsetningu þeirra.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica