Kristnihátíðarsjóður var stofnaður árið 2000 til að minnast þess að 1000 ár voru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á Íslandi. Hlutverk sjóðsins var annars vegar að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífsgildi hennar, siðferði og framtíðarsýn og hins vegar að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar. Með tilkomu sjóðsins urðu þáttaskil í fornleifarannsóknum á Íslandi.
Sýningin Endurfundir sem stóð í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands 2009-2010 var gerð til að varpa ljósi á nokkrar af þessum rannsóknum og til að kynna þær merku og mikilvægu fornleifarannsóknir sem farið hafa fram á tímabilinu. Mikilvægi rannsóknanna felst meðal annars í því hve þær auka á þekkingu okkar á liðinni tíð, um það hvernig menn lifðu, störfuðu og stunduðu trú sína í þessu landi. Það er sá grunnur sem við sem nú lifum höfum til byggja á.