Á eigin vegum

Á eigin vegum á grunnsýningu Þjóðminjasafnsins

Tilbúnar leiðsagnir

Mæðgur feta Fræðsluspor fjölskyldunarBoðið eru upp á tilbúnar leiðsagnir sem fólk getur stuðst við ef það vill leiða eigin gesti gegnum safnið, til dæmis börn og unglinga. Þessar leiðsagnir geta einnig hentað ef fólk vill hafa lesefni í hendi sér á meðan það gengur sjálft um sýninguna.

Einnig er boðið upp á safnleiki sem eru prýðisgóð leið til að kynna börn fyrir gripunum í Þjóðminjasafninu og menningarsögu Íslands.

 
Foreldrar og börn skoða grunnsýninguna með hjálp tilbúnar leiðsagnar

Leiðsögn fyrir leiðbeinendur yngri hópa á eigin vegum

Leiðsögnin er ætluð leiðbeinendum yngri hópa á eigin vegum, svo sem skóla- og frístundahópum eða fjölskyldum. Hún er létt og stutt og getur kveikt hugmyndir að umræðum með börnunum um söguna að baki gripanna í Þjóðminjasafninu og líf fólksins sem notaði þá. Leiðsögnina má prenta út, nálgast í afgreiðslu safnsins eða lesa að neðan.

Lesa meira
 

Leiðsögn fyrir leiðbeinendur eldri hópa á eigin vegum

Leiðsögnin er ætluð leiðbeinendum efri bekkja grunnskóla og framhaldsskóla

og öðrum hópum eða einstaklingum sem vilja fara um Þjóðminjasafnið á eigin vegum.

Hún hefst á stuttri kynningu á safninu og uppbyggingu grunnsýningar og nær yfir hana alla, tvær hæðir. Stoppað á 24 stöðum þar sem gripum er lýst og við hljóðstöð til að hlusta á raddir fyrri alda. Leiðsögnina er hægt að prenta út, nálgast í afgreiðslu safnsins eða lesa að neðan.

Lesa meira
 

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica