Hljóðleiðsögn
Kynnist grunnsýningunni með hljóðleiðsögn
Þjóðminjasafnið býður upp á hljóðleiðsögn um valda gripi á grunnsýningu safnsins Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár á sex tungumálum: Íslensku, ensku, dönsku, frönsku, pólsku og þýsku.
Einnig er boðið upp á sérstaka hljóðleiðsögn fyrir börn á íslensku eða ensku.
Hljóðleiðsögnina má nálgast í afgreiðslu safnsins.

