Skemmtimenntun
Skemmtimenntun

Leikið með menningarsöguna

Á annarri hæð grunnsýningarinnar eru tvö herbergi helguð skemmtimenntun. Þar er gestum Þjóðminjasafnsins, börnum og fullorðnum, boðið að reyna sig við margs konar þrautir og leiki. Tilgangurinn er að virkja þá og skapa tilbreytingu í sýninguna. Gestir fá að reyna ýmislegt á eigin skinni og þreifa á hlutum. 

Þessi nálgun ætti að geta stuðlað að auknum áhuga og skilningi og fólk fær tækifæri til að sjá safnkostinn í nýju ljósi.

Í stærra herberginu eru búningar frá ýmsum tímum sem öllum er frjálst að prófa. Þar er hægt að smeygja sér í hjálm frá víkingatímanum ogStelpa setur sig í spor víkings prófa sverð og skjöld. Þar má einnig finna hversu þung hringabrynja og hjálmur eru. Einnig er þarna gömul ritvél og sími og líkan af miðaldakaupstaðnum á Gásum í Eyjafirði. Í sögukompunni er hægt að lesa bækur og hlusta á þjóðsögur á íslensku og ensku.

Í minna herberginu er hægt að fræðast um tímabilið 1955-1965, skoða myndir, snerta gripi og hlusta á tónlist frá þeim tíma. Það er meðal annars notað í minningavinnu með eldri borgurum.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica