Almennir safngestir
Fjölbreytt safnfræðsla
Í Þjóðminjasafninu er margvísleg fræðsla í boði fyrir almenna safngesti, bæði um grunnsýninguna Þjóð verður til og sérsýningar. Hægt er að ganga að vandaðri fræðslu um íslenskar þjóðminjar frá landnámi til nútímans, hvort sem hún fæst gegnum sígilda leiðsögn frá starfsmönnum safngæslu, hljóðleiðsögn, sérfræðileiðsögn eða með öðrum hætti. Sumir eru "á eigin vegum" og geta þá sjálfir stýrt ferðinni gegnum safnið með hjálp tilbúinna leiðsagna sem fást á vefnum eða í afgreiðslunni.

