Jóladagskrá
Leppalúði, Grýla og börnin í Þjóðminjasafninu

Lifandi jóladagskrá í Þjóðminjasafni Íslands

Jólasveinarnir koma í Þjóðminjasafnið

Margt er um að vera í Þjóðminjasafni Íslands og desember er einn viðburðaríkasti mánuður ársins.

Hægt er að senda vinum og vandamönnum rafrænt jólakort.

Þjóðminjasafn Íslands býður á hverju ári upp á líflega jóladagskrá. Dagskráin hefst fyrstu helgi í desember. Að auki er boðið upp á fjölda jólasýninga og sérstakur jólaratleikur bætist við aðra fjölskylduleiki safnsins.

Frá 12.-24. desember mæta jólasveinarnir til byggða, en þeir hafa lagt það í vana sinn að koma við í Þjóðminjasafninu á hverjum morgni, eftir að skyldum þeirra lýkur og þeir eru búnir að setja í alla barnaskó sem þeir finna.

Einnig er boðið upp á fyrirlestra tengda íslenskum jólasiðum.

Safnbúðin er full af þjóðlegum leikföngum, vönduðum minjagripum og bókum og kaffið í veitingastofunni Kaffitári er að venju óviðjafnanlegt.

Hin þjóðlega jóladagskrá Þjóðminjasafnsins hefur áunnið sér hefð og með árunum eignast allmarga aðdáendur, sérstaklega í hópi yngri gesta safnsins.

 Opið yfir jólin

Jólasíða Þjóðminjasafnsins


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica