Safnanótt
Menningarhátíð
Í febrúar á hverju ári stendur Höfuðborgarstofa fyrir Safnanótt. Fjöldi safna víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu bjóða þá upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Í Þjóðminjasafni Íslands hefur að þessu tilefni m.a. verið boðið upp á draumkenndan dans, kvikmyndasýningar, draugaleiðsögn, hjátrúarsýningu og margt fleira.

