Dagskrá Sumardagsins fyrsta í Þjóðminjasafninu er að þessu sinni helguð börnum og brúðum. Fyrst ber að nefna Gangandi brúðuleikhús Konstantin Shcherbak og Maríu Bjarkar Steinarsdóttur sem verður með leiksýningar klukkan 14 og 16. Aðalbrúða sýningarinnar er hin rússneska karnivalsbrúða Petrushka.
Lesa meira
Á sumardaginn fyrsta er gaman að vera barn í Þjóðminjasafninu. Öll börn fá blöðrur og frumlegir safnkennarar hafa ýmislegt á prjónum. Skemmtilegi huldustrákurinn Vöggur verður með leiðsögn klukkan 14, 15 og 16. Vöggur fer með börn og fullorðna um safnið og segir frá sýningargripunum eins og honum einum er lagið! Í tilefni af komu sumarsins er ókeypis inn á Þjóðminjasafnið allan daginn og boðið upp á samfellda dagskrá frá 14 til 17. Brugðið verður á leik inni, - og einnig úti ef veður leyfir! Farið verður í snú-snú, teygjutvist, parís og aðra gamla góða leiki.
Sumardagurinn fyrsti verður viðburðaríkur á Þjóðminjasafni Íslands! Opið hús er allan daginn með fjölbreyttri dagskrá fyrir fjölskyldur, ókeypis aðgangur og allir velkomnir. Farið er í ratleik um grunnsýninguna og leitað að ýmis konar dýrum og á tombólu í Safnbúðinni má eignast fína litla gripi. Í listasmiðju á Torginu við Kaffitár fá börn að lita myndir með teikningum og mynstrum frá Þjóðminjasafninu og myndir listamannanna verða til sýnis! Öll börn fá blöðru við útganginn, frumlegar sumargjafir eru til sölu í Safnbúðinni og á Kaffitári fást að sjálfsögðu sumarlegar veitingar.
Lesa meira
Þjóðminjasafn Íslands stendur fyrir fjölbreyttri dagskrá á sumardaginn fyrsta. Þar má nefna leikfangasýningu sem höfðar sérstaklega til barna, boðið verður upp á gamla leiki og hlutavelta verður í safnbúð.