Farðu burt vetur!
Sumardagurinn fyrsti í Þjóðminjasafninu 2007
Á sumardaginn fyrsta er gaman að vera barn í Þjóðminjasafninu. Öll börn fá blöðrur og frumlegir safnkennarar hafa ýmislegt á prjónum. Skemmtilegi huldustrákurinn Vöggur verður með leiðsögn klukkan 14, 15 og 16. Vöggur fer með börn og fullorðna um safnið og segir frá sýningargripunum eins og honum einum er lagið! Í tilefni af komu sumarsins er ókeypis inn á Þjóðminjasafnið allan daginn og boðið upp á samfellda dagskrá frá 14 til 17. Brugðið verður á leik inni, - og einnig úti ef veður leyfir! Farið verður í snú-snú, teygjutvist, parís og aðra gamla góða leiki.
Á Torginu er sýningin Með silfurbjarta nál í ævintýraskógi Rousseau og ætti enginn að láta hana fara fram hjá sér fara. Til sýnis eru verk barna úr Myndlistaskólanum í Reykjavík sem þau unnu í tengslum við textílsýninguna Með silfurbjarta nál - spor miðalda í íslenskum myndsaumi í Bogasalnum á 2. hæð. Á sumardaginn fyrsta er einnig efnt til listasmiðju allra barna á Torginu: Brotið verður í báta, skutlur, gogga o.fl. og stimplar og litir eru á staðnum. Skapandi hæfileikar barnanna ættu að fá að njóta sín og til að fullkomna stemninguna verður spiluð skemmtileg tónlist.
Hin ævintýralega, árlega og sívinsæla tombóla verður haldin við Safnbúðina og þar fást jafnframt fallegir gripir og góðar bækur á frábæru tilboði. Veitingar verða einstaklega ljúffengar og sumarlegar í Kaffitári.
Þjóðminjasafnið er opið frá 11 til 17 og allir velkomnir.

