Fjölskyldur
Krakkar skoða Þjóðminjasafnið

Fjölskyldur

Í Þjóðminjasafninu er boðið upp á margs konar fræðslu- og skemmtiefni sem hentar fjölskyldum. Safnleikirnir þar sem foreldrar og börn leysa saman þrautir í safninu eru góður valkostur og í vinnslu er einnig sérstök hljóðleiðsögn sem gera mun börnum kleift að ganga sjálf gegnum grunnsýninguna með eigin heyrnatól.

Ágætt er að reikna með einum til tveimur klukkutímum til að skoða safnið.

Þegar safnið hefur verið skoðað er tilvalið að heimsækja safnbúðina sem hefur úrval þjóðlegra leikfanga og barnabóka og ekki má gleyma veitingastofunni Kaffitár þar sem stundum eru tilboð á veitingum fyrir fjölskyldur.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica