Lifandi leiðsögn
Barnaleiðsögn
Fyrsta sunnudag í mánuði yfir vetratímann er boðið upp á sérstaka barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands. Meðal þess sem er skoðað er 800 ára gamall skór, dularfullur álfapottur, gömul hurð með fallegum myndum (Valþjófsstaðahurðin), beinagrindur, hringabrynja, galdramunir og margt fleira.
Frekari upplýsingar má finna í vetradagskrá safnsins.

