Safnleikir
Krakkar í Fræðslusporum fjölskyldunnar

Fræðsluspor fjölskyldunnar

Fræðsluspor fjölskyldunnar eru bæklingar með skemmtilegum þrautum og leikjum sem fela í sér fræðslu um gripi grunnsýningarinnar. Börn og fullorðnir geta fetað saman Fræðslusporin, leyst þrautir, teiknað myndir og leikið sér.

Miðað er við að börn frá 5-10 ára geti leyst verkefnin af hendi en þau yngri þurfa hjálp frá fullorðnum við að lesa spurningar í bæklingnum og skrifa einstaka svör.

Hægt er að velja um tvenns konar Fræðsluspor:

Gersemar, en þar fær gesturinn m.a. að kynnast nælum, hálsfestum og silfurpeningum frá landnámstímanum, fagurlega útskornum drykkjarhornum frá miðöldum og skautbúningi frá 19. öld.

Ferðalög, en þar er gesturinn m.a. leiddur inn í heim landnámsferða frá Noregi til Íslands, skoðað er gamalt Íslandskort, reiðtygi og reiðhempa og ferðin endar svo í nútímalegri flugstöð.

Fræðsluspor fjölskyldunnar má nálgast endurgjaldslaust í afgreiðslu Þjóðminjasafnsins.





Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica