Saga daganna

16. mars - Gvendardagur

Gvendardagur er 16. mars. Þá lést Guðmundur góði Arason Hólabiskup árið 1237. Guðmundar- eða Gvendardagur varð messudagur í Hólabiskupsdæmi árið 1315 þegar bein hans voru tekin upp.

Mikil helgi var á Guðmundi meðan katólska entist þótt hann væri aldrei lýstur helgur maður opinberlega og eimdi lengi eftir að dýrkun hans, einkum á norðanverðum Vestfjörðum þar sem heimildir eru um nokkurt tilhald á messudegi Guðmundar allt fram á 20.öld. Sunnanlands var gert ráð fyrir veðrabrigðum til hins verra þennan dag eða Geirþrúðardag daginn eftir, og jafnvel talið ills viti ef það brást.

Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson, 1996




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica