25. mars - Boðunardagur Maríu
Dagurinn var mikil hátíð í katólskum sið, og var haldið til hans hérlendis langt fram yfir siðaskipti. Sumstaðar var hann talinn með mestu hátíðum fram á 19. öld. Óheillavænlegt þótti að síðasti dagur góu lenti á boðunardeginum.
Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson, 1996
25. mars - yngismannadagur (einmánuður byrjar) - heitdagur
Einmánuður, síðasti mánuður vetrar, hefst nú á þriðjudegi 20. til 26. mars en 10. til 16. mars í gamla stíl fyrir 1700. Fyrsti dagur einmánaðar er nefndur í elstu heimildum í tengslum við hreppssamkomu þar sem meðal annars var skipt fátækratíund. Síðar varð þessi dagur að heitdegi í Skagafirði, Eyjafirði og að nokkru í Þingeyjarsýslum. Samkomur, heitgjafir og helgihald héldust fyrsta dag einmánaðarþar til konungur bannaði heitdaginn árið 1744. Urðu embættismenn að ítreka það bann fram á 19. öld. Einmánuður er helgaður piltum og harpa stúlkum á sama hátt og húsbændur og húsfreyjur áttu þorra og góu. Fyrsti dagur einmánaðar hefur víðast verið kallaður "yngismannadagur" á síðustu öldum, og áttu stúlkur að fagna honum. Sagt er að votur einmánuður boði gott vor.
Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson, 1996

