Saga daganna

Október - Vetrarkoma

Vetrarmisseri hefst nú laugardaginn 21. til 27. október, en 10. til 16. október i gamla stíl fyrir 1700.

Vetrarmisseri hefst nú laugardaginn 21. til 27. október, en 10. til 16. október i gamla stíl fyrir 1700. Eitthvert hátíðahald virðist hafa tíðkast um veturnætur í heiðnum sið norrænum, og á miðöldum voru veislur almennar í vetrarbyrjun. Einkum er algengt að þá sé efnt til brúðkaups, enda var þá mest til af nýju kjöti. Tilhald í vetrarbyrjun kann með eflingu kristni að hafa verið fært til allraheilagramessu skömmu síðar. Slíkur hátíðaflutningur kann að vera orsök óvissu um tímasetningu "sviðamessunnar" þegar svið voru etin nýsviðin. Á síðari öldum hefur við vetrarbyrjun þótt gott að marka vetrarveður af hegðun músa, fugla og fleiri dýra, og snjóþyngsli meðal annars af berjasprettu sumarið áður. Sumir spáðu í stjörnur vetrarbrautarinnar, og algengt var að kanna veturhorfur með því að skera í milta af kind eða stórgrip.
Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson, 1996




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica