Saga daganna

1. apríl

Fyrsti apríl er nú alþjóðlegur gabbdagur og er líklegast að þau ærsl eigi uppsprettu sína í nýársgleði í vestanverðri Evrópu og víðar á miðöldum. Þá var 1. apríl áttundi og síðasti dagur nýárshátíðar sem hófst um vorjafndægur 25. mars.

Um ærsl þennan dag hérlendis er ekki vitað fyrr en seint á 19. öld, en ljóst er að lærðir Íslendingar þekktu fyrirbærið að „hlaupa apríl" á 17. og 18. öld. Fyrsta alkunna aprílgabb í íslenskum fjölmiðli var frétt um fljótaskip á Ölfusá frá fréttastofu Útvarps árið 1957.
Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson, 1996


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica