Saga daganna
1. maí - alþjóðlegur dagur verkalýðs-hreyfingarinnar
Hinn 1. maí var meðal katólskra helgaður postulunum Filippusi og Jakobi yngra, og síðar heilagri Valborgu. Rann sú messa sunnar í álfu saman við eldri vorhátíð heiðna með ýmsum furðum.
Fyrsti maí er alþjóðlegur dagur verkalýðshreyfingarinnar frá 1889, og var fyrsta kröfuganga á Íslandi farin árið 1923. Hérlendis hefur annað ekki borið sérstaklega við þennan dag. Árið 1955 helgaði páfastóllinn hann verkamanninum Jósef trésmið, fóstra Jesú Krists.
Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson, 1996

