3. maí - Krossmessa á vor
Krossmessa á vor er 3. maí. Hún er haldin til minningar um að kross Krists hafi fundist árið 320, og var mikill kirkjulegur virðingardagur á 11. og 12. öld á Íslandi.
Síðar var ráðningartími vinnufólks miðaður við daginn, og eru dæmi um að krossmessunafnið hafi flust með vinnuhjúaskildaganum til 14. maí þegar skildaginn var færður til með nýja stíl árið 1700. Af venjum um brottför hjúa af bæ hafa skapast sagnir um að vinnufólk „æti sig inn í vistina" ef það þægi málsverð áður en haldið var af stað. Víða um land hefur þekkst að vinnufólk fengi krossmessuskó við vistaskiptin, annaðhvort frá gömlu húsbændunum eða þeim nýju.
Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson, 1996

