Saga daganna

17. júní - Lýðveldisdagurinn

Fæðingardags Jóns Sigurðssonar forseta var fyrst minnst með opinberum samkomum árið 1907 en fyrst var haldinn almennur þjóðminningardagur á aldarafmæli Jóns 17. júní árið 1911.

Þá var Háskóli Íslands settur í fyrsta sinn. Eftir það héldu íþróttasamtök einkum upp á 17. júní, uns hann var valinn stofndagur lýðveldis árið 1944. Síðan hefur hann verið opinber þjóðhátíðardagur og almennur frídagur.
Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson, 1996


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica