Saga daganna
19. júní - Kvenréttindadagurinn
Kvenréttindadagurinn er 19. júní, en þann dag árið 1915 staðfesti konungur samþykkt alþingis um kosningarétt kvenna. Síðan hafa samtök kvenna minnst dagsins.
Var bygging Landspítalans helsta baráttumál dagsins til um 1930. Kvenréttindafélag Íslands hefur verið aflvaki hátíðahalda, mannfagnaða og útgáfu blaðsins 19. júní í tilefni dagsins frá upphafi sjötta áratugarins.
Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson, 1996

