Saga daganna

2. júlí - Þingmaríumessa

Vitjunardagur Maríu meyjar er 2. júlí, ein af sjö helstu Maríumessum ársins. Þá vitjaði María Elísabetar móður Jóhannesar skírara. Grámunkar innleiddu daginn í Rómarkirkjunni á 13. öld og páfi viðurkenndi messuna 1389.

Á Íslandi bar daginn fram til 1700 upp á miðjan samkomutíma alþingis og er nafnið Þingmaríumessa þannig til orðið. Helgi þingmaríumessu var ekki aflögð fyrr en 1770 en tímasetningar oft við hana miðaðar síðan.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica