Saga daganna
13. júlí - Hundadagar
Hundadagar hefjast nú 13. júlí og lýkur 23. ágúst. Um hásumar skín Síríus eða hundastjarnan skært, og kenndu Forn-Grikkir heitustu sumarvikurnar því við þá stjörnu.
Hérlendis hafa ýmsar nafnskýringar verið reyndar, til dæmis að hundar bíti gras á hundadögum eða verði slengjarnir, einnig hafa hundadagar verið tengdir hátterni smáhvala eða hundfiska um þetta leyti. Síðustu aldir hefur tímabilið tengst minningu Jörundar hundadagakonungs og valdatíma hans á íslandi sumarið 1809.

