Saga daganna
Mikjálsmessa
Mikjálsmessa er 29. september. Mikjáll var talinn einskonar herforingi engla. Var messa hans sungin af kappi við upphaf norrænnar kristni, og var ein af meðalmessum í katólskum sið. Síðar varð hún ein af þeim messum sem áfram voru leyfðar við siðaskipti.
Dæmi eru um að skuldalúkningar miðist við Mikjálsmessu, og vitað er um samkomur og hátíðabrigði þann dag, enda bar hann upp um svipað leyti og heyrskaparlok, fjárleitir og upphaf sláturtíðar. Haustvertíð á Suðurnesjum og Vesturlandi hófst á Mikjálsmessu.
(Heimild: Saga Daganna, 1996 /Árni Björnsson)

