Saga daganna

6. desember - Nikulásmessa

Nikulásmessa er 6. desember. Heilagur Nikulás biskup í Mýru var einn af vinsælustu dýrlingum hérlendis. Það kann að valda að hann var meðal annars alþjóðlegur verndari sæfara. Nikulásmessa féll niður við siðaskipti en nokkur átrúnaður tengdur Nikulási virðist hafa haldist við kirkjur sem áður voru helgaðar honum, jafnvel fram undir lok 19. aldar.

Ytra varð Nikulás fyrirmynd alþjóðlega jólasveinsins, Santa Claus, sem mótaðist smám saman í Evrópu og Ameríku eftir siðaskiptin og fram á 19. öld. Íslensku jólasveinarnir tóku upp búnað og sumt atferli Nikulásar kringum 1930 þótt þeir héldu eigin nöfnum. Má því segja að heilagur Nikulás hafi á 20. öld orðið Íslendingum handgenginn öðru sinni í nýju hlutverki.

Heimild: Árni Björnsson : Saga daganna, Rv. 1993


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica