Skólahópar:
Leikskóli
4 ára: Vís er sá er víða fer. Þjóðminjasafn - hvað er það?
Grunnskóli
1.bekkur: Fyrrum átti ég falleg gull. Baðstofulíf
3.bekkur: Tíminn og skórnir. Safngripirnir í aldanna rás.
5.bekkur: Í spor landnámsmanna. Upphaf Íslandsbyggðar.
6. - 8.bekkur: Ein grjóthrúga í hafinu. Leiðsögn unnin út frá kennslubók.
7.bekkur: Öxin og jörðin geyma þá best. Siðaskiptin.
9.bekkur: Meira vinnur vit en strit. Tæknibreytingar á 20.öld.
Framhaldsskóli
SAG 103: Þjóð í mótun. Grunnsýning, tímabilið 800-1600.
SAG 203: Leiðin til samtímans. Grunnsýning, tímabilið 1600-2000.
LIM 103: Lífgað upp á hvunndaginn. Listir og handverk fyrri alda.
ÍSL 403: Frá rúnaristum til ritvéla. Íslensk bókmenntasaga.
FÉL 103: Húsbændur og hjú. Fjölskyldan, atvinnuvegir og stéttaskipting.
FÉL 203: Hlekkir fortíðar. Glæpur og refsing í feðraveldi.
Háskólahópar
Boðið er upp á kynningu á starfsemi og sýningum Þjóðminjasafns Íslands fyrir nemendur á fyrsta ári í háskólanámi. Kynningin er sniðin eftir þörfum þess fræðasviðs er við á hverju sinni.
Sérhópar
Tekið er á móti hópum með sérþarfir eftir samkomulagi. Hægt er að óska eftir sérleiðsögn þar sem snertisafn er notað. Snertisafnið er safn gamalla gripa sem má snerta og hentar vel fyrir blind eða sjónskert börn. Boðið er upp á tvenns konar leiðir í fræðslu fyrir seinfær börn og unglinga. Annars vegar er unnið með landnám Íslands og hins vegar er nemendum kynnt baðstofulíf fyrri alda.

